Kaldalón hf.: Birting á vottaðri umgjörð um græna fjármögnun
August 18 2024 - 8:20AM
UK Regulatory
Kaldalón hf.: Birting á vottaðri umgjörð um græna fjármögnun
Kaldalón hefur birt umgjörð um græna fjármögnun í þeim tilgangi
að geta gefið út græn skuldabréf (Green Financing Framework).
Markmið útgáfu umgjarðarinnar er að fjármagna eða endurfjármagna
umhverfisvottaðar fasteignir, umhverfisvænar fjárfestingar og önnur
verkefni í samræmi við stefnu félagsins.
Verkefnin sem fjármögnuð verða með grænum
skuldabréfum þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í umgjörð
félagsins, en umgjörðin byggir á alþjóðlegum viðmiðum (e.
Green Bond Principles) sem International Capital Market Association
(ICMA), Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði hafa sett saman af
eftirfarandi stoðum:
- Ráðstöfun fjármuna
- Ferli um mat og val á verkefnum
- Stýring fjármuna
- Upplýsingagjöf
Umgjörðin hefur hlotið vottun frá Sustainalytics sem er leiðandi
viðurkenndur vottunaraðili á heimsvísu. Samkvæmt vottuninni er
umgjörð Kaldalóns hf. trúverðug, áhrifarík og í samræmi við
ofangreind viðmið ICMA.
Græna umgjörðin var unnin í samstarfi við
Landsbankann.
Grænu umgjörðina, ásamt áliti Sustainalytics, má
nálgast á vef Kaldalóns.
Jón Þór Gunnarson, forstjóri
„Í dag birtir Kaldalón umgjörð um græna fjármögnun. Árið
2023 gaf félagið í fyrsta skipti út grunnlýsingu vegna 30 milljarða
útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Félagið gefur í dag út fyrsta
græna fjármögnunarramma félagsins og mun í framhaldi gefa út græn
skuldabréf á markaði.
Græn skuldabréf eru liður í fjármögnun umhverfisvænna
fjárfestinga okkar á borð við umhverfisvottaðar fasteignir. Útgáfan
er í samræmi við markmið Kaldalóns um umhverfisvernd og sjálfbærni.
„
Nánari upplýsingar veitir
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
kaldalon@kaldalon.is