VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar
January 18 2024 - 7:53AM
VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum
til stjórnar VÍS vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður
fimmtudaginn 21. mars 2024.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta
eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til sunnudagsins
4. febrúar 2024.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er
að nálgast hér og á vefsvæði tilnefningarnefndar á
heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/tilnefningarnefnd/.
Útfylltum eyðublöðum skal skila á
netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is. Almennur framboðsfrestur
til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund.
Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda
til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki,
en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu
tilnefningarnefndar.
Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu
stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði.
Skagi Hf (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Feb 2025 to Mar 2025
Skagi Hf (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Mar 2024 to Mar 2025