VÍS stofnar SIV eignastýringu
September 21 2022 - 4:11AM
VÍS stofnar SIV eignastýringu
VÍS hefur ákveðið að útvíkka starfsemi sína og
bjóða upp á sjóða- og eignastýringu. Stofnað verður nýtt
dótturfélag undir starfsemina sem hlýtur nafnið SIV
eignastýring (siveignastyring.is).
Félagið mun í framhaldi sækja um starfsleyfi til eignastýringar og
rekstrar sjóða ─ en stefnt er að því að starfsemi félagsins hefjist
um leið og starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands liggur fyrir.
Góður árangur í fjárfestingum
VÍSÁrangur VÍS í fjárfestingum hefur verið mjög góður á
undanförnum árum. Fjárfestingartekjur félagsins frá árinu 2018 nema
um 21 milljarði króna og telja fjárfestingareignir þess nú um 45
milljarða króna. Fjárfestingar eru önnur af tveimur grunnstoðum í
starfsemi VÍS ─ og því fellur eignastýring vel að starfsemi
félagsins. VÍS mun fela SIV eignastýringu að stýra
fjárfestingareignum sínum.
Reynsla í lykilhlutverkiVÍS mun
eiga ráðandi hlut í SIV eignastýringu ─ og mun eitt fara með virkan
eignarhlut í félaginu. Aðrir helstu hluthafar verða Arnór
Gunnarsson, nú forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS, og Þorkell
Magnússon, sem starfað hefur sem forstöðumaður sjóðastýringar Kviku
banka ─ en þeir munu jafnframt starfa hjá félaginu. Arnór
Gunnarsson verður framkvæmdastjóri SIV eignastýringar, en hann
hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði síðan 2001. Þorkell
verður forstöðumaður sjóðastýringar hjá SIV eignastýringu, en
reynsla hans á fjármálamarkaði nær aftur til ársins 1998. Áður
störfuðu Arnór og Þorkell saman hjá Öldu sjóðum, Stefni og
Kaupþingi.
Tækifæri á íslenskum
fjármálamarkaðiÖrar samfélagsbreytingar kalla á stöðuga
endurskoðun á þjónustuframboði, ekki síst í trygginga- og
fjármálaþjónustu. Þessi útvíkkun á starfsemi VÍS endurspeglar þá
þróun sem hefur átt sér stað víða í Evrópu þar sem tryggingafélög
hafa boðið upp á fjölbreyttari trygginga-og fjármálaþjónustu.
Á undanförnum árum hefur verðbréfamarkaður verið að byggjast upp
hér á landi og hefur fjárfestingakostum í skráðum verðbréfum
fjölgað til muna. Á sama tíma hefur þátttakendum á markaði fjölgað
talsvert með aukinni þátttöku almennings á skráðum
hlutabréfamarkaði og uppfærslu Íslands í flokk nýmarkaðsríkja hjá
alþjóðlega vísitölufyrirtækinu FTSE Russell. Því er ljóst að
spennandi tækifæri eru til staðar á íslenskum fjármálamarkaði.
Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:
„Við leggjum ríka áherslu á að VÍS þróist í takt
við samfélagið og horfum til þess að bjóða upp á fjölbreyttari
trygginga- og fjármálaþjónustu. Sterk staða á tryggingamarkaði,
breiður viðskiptavinagrunnur, fjárhagslegur styrkur, öflugur
tæknilegur grunnur og góður árangur í fjárfestingum ─ eru
styrkleikar sem við viljum byggja á. Við höfum góðan grunn og afar
sterka innviði til þess að taka næstu skref. Ég trúi því að árangur
hins nýja félags muni byggja á umtalsverðri þekkingu og reynslu
öflugs starfsfólks í fjárfestingum og eignastýringu. Ég tel að
þetta skref í útvíkkun starfseminnar, sem eignastýringin felur í
sér, sé mikið heillaskref ─ og auðvitað mikil tímamót í sögu
félagsins.“
Nánari upplýsingar veitir Helgi
Bjarnason, forstjóri VÍS, í síma 660-5140 og með
tölvupósti helgi@vis.is
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Jan 2025 to Feb 2025
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Historical Stock Chart
From Feb 2024 to Feb 2025
Real-Time news about Vis Insurance Ltd (London Stock Exchange): 0 recent articles
More News Articles